Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24437 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR07.11.2023, 17:12

Ibrahima Balde nokkuð óvænt áfram hjá Vestra (Staðfest)

Vestri hefur tilkynnt að Ibrahima Balde hafi skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Miðjumaðurinn kom til félagsins fyrir tímabilið 2023, lék 23 leiki í sumar og skoraði tvö mörk. Balde er 27 ára senegalskur miðjumaður sem kom frá EL Palo á Spáni. Hann mun spila með Vestra í Bestu deildinni á næsta tímabili.

FRÉTTIR07.11.2023, 17:00

Manning tekur við Bristol City (Staðfest)

Bristol City hefur ráðið Liam Manning sem nýjan stjóra félagsins. Manning er 38 ára og tekur við starfinu af Nigel Pearson sem var rekinn í síðasta mánuði. Bristol City hafði tapað fimm af sjö leikjum undir stjórn Pearson og var í fimmtánda sæti Championship þegar honum var sparkað en hefur nú náð að lyfta sér upp í það ellefta.

FRÉTTIR07.11.2023, 16:27

Jökull fær tvo til að aðstoða sig (Staðfest) - Björn Berg í nýtt hlutverk

Stjarnan tilkynnti rétt í þessu að þjálfarinn Jökull Elísabetarson væri kominn með tvo menn inn í teymi sitt. Það eru þeir Björn Berg Bryde og Elías Hlynur Lárusson. Þór Sigurðsson verður ekki áfram styrktarþjálfari liðsins en Elite þjálfun mun sjá um hana á komandi tímabili. <i>„Þór Sigurðsson er fluttur til Spánar til þess að einbeita sér að Doktorsnámi sínu. Þór mun vera félaginu áfram innan handar er snýr að greiningum og fleira. Þór hefur gert rosalega öfluga hluti fyrir liðið og á mjög stóran þátt í því sem við höfum verið að gera og hvar liðið er statt í dag,"</I> segir í tilkynningu Stjörnunnar.

FRÉTTIR07.11.2023, 14:11

Olgeir áfram hjá Fylki (Staðfest)

Í íslenska slúðurpakkanum sem birtur var hér á Fótbolta.net fyrir helgi var sagt: <i>&bdquo;Sagan segir að Olgeir Sigurgeirsson verði ekki áfram aðstoðarþjálfari liðsins."</I> Fótbolti.net heyrði í Olgeiri í dag og hann staðfesti að hann yrði áfram hjá Fylki, hann væri búinn að skrifa undir nýjan samning við félagið. <i>&bdquo;Ég verð áfram, veit ekki hvaða sögusagnir þetta eru sem eru búnar að vera. Ég er búinn að skrifa undir nýjan samning,"</I> sagði Olgeir.

FRÉTTIR07.11.2023, 09:30

Phil Neville nýr þjálfari Portland Timbers (Staðfest)

Phil Neville hefur verið ráðinn þjálfari Portland Timbers í Bandaríkjunum og skrifar hann undir samning til ársins 2026. Þessi fyrrum leikmaður Manchester United, Everton og enska landsliðsins hefur verið án starfs síðan í júní þegar hann var látinn fara sem stjóri Inter Miami. Þar á undan stýrði Neville, sem er 46 ára, enska kvennalandsliðinu í þrjú ár.

FRÉTTIR06.11.2023, 09:30

Sú efnilegasta skiptir alfarið í FH (Staðfest)

Margrét Brynja Kristinsdóttir, sem valin var efnilegasti leikmaður FH á liðnu tímabili, hefur skipt alfarið til félagsins frá uppeldisfélagini Breiðabliki. Miðjumaðurinn var á láni hjá FH frá Blikum í sumar og lék vel í hvítu og svörtu treyjunni.

FRÉTTIR03.11.2023, 16:11

Gareth Owen í þjálfarateymi Rúnars hjá Fram (Staðfest)

Fram hefur ráðið hinn breska Gareth Owen til starfa hjá félaginu en hann tekur við stöðu yfirmarkvarðarþjálfara. Daði Lárusson hefur síðustu ár þjálfað markverði félagsins en hann hefur núna yfirgefið félagið.

FRÉTTIR31.10.2023, 18:00

Bjarni Gunnarsson leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Sóknarmaðurinn Bjarni Gunnarsson hefur lagt skóna á hilluna. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag. Hann er þriðji leikmaðurinn hjá Fjölni sem leggur skóna á hilluna eftir tímabilið. Fyrir höfðu þeir Guðmundur Þór Júlíusson og Dofri Snorrason kallað þetta gott. Auk þess er fyrirliði Fjölnis frá liðnu tímabili, Hans Viktor Guðmundsson, horfinn á braut, en hann samdi við KA á dögunum.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.