Fotbolti.net
07.11.23 - 17:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ibrahima Balde nokkuð óvænt áfram hjá Vestra (Staðfest)

Ibrahima Balde nokkuð óvænt áfram hjá Vestra (Staðfest)
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Vestri hefur tilkynnt að Ibrahima Balde hafi skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Miðjumaðurinn kom til félagsins fyrir tímabilið 2023, lék 23 leiki í sumar og skoraði tvö mörk.

Balde er 27 ára senegalskur miðjumaður sem kom frá EL Palo á Spáni. Hann mun spila með Vestra í Bestu deildinni á næsta tímabili.
Það kemur dálítið á óvart að Balde sé búinn að framlengja því eftir mót sagði Samúel Samúelsson, formaður Vestra, eftirfarandi:

„Ég hef ekkert rætt við Ibrahima Balde frá því hann fór. Það kæmi mér mjög á óvart ef hann yrði áfram."

Tilkynning Vestra:
Það er okkur mikil ánægja að tilkynna að miðjumaðurinn Ibrahima Baldé hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning.

Baldé kom til okkar fyrir tímabilið í fyrra frá EL Palo á Spáni. Hann lék 23 leiki á nýloknu tímabili og stóð sig með mikilli prýði, því verður spennandi að sjá miðjumanninn í Bestu deildinni á næsta ári.
Sammi: WhatsApp-ið mitt hefur ekki stoppað
TENGT EFNI

Sammi: WhatsApp-ið mitt hefur ekki stoppað


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.