Þór Llorens yfirgefur Selfoss (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór Llorens Þórðarson hefur ákveðið að yfirgefa Selfoss eftir fimm tímabil með félaginu.
Þór Llorens, sem er fæddur um aldamótin, ólst upp hjá ÍA á Akranesi en flutti á Selfoss til að spila með liðinu í 2. deildinni sumarið 2019. Hann reyndist mikilvægur hlekkur í liðinu og spilaði tæplega 100 leiki á dvöl sinni hjá félaginu.
„Ég hef átt frábæran tíma á Selfossi og kynnst alveg yndislegu fólki, bæði í klúbbnum og í samfélaginu en þau kynni tek ég með mér út í lífið. Nú taka við nýir og spennandi tímar og ég er spenntur fyrir nýrri áskorun. Takk fyrir mig og áfram Selfoss," segir Þór.
Í tilkynningu frá Knattspyrnudeild Selfoss er Þór þakkað fyrir sitt framlag til félagsins og honum óskað góðs gengis í komandi verkefnum.
Þór féll úr Lengjudeildinni með Selfossi og spilaði 15 keppnisleiki í sumar, 12 í Lengjudeildinni og 3 í Mjólkurbikarnum þar sem hann skoraði tvö mörk.