Bjarni Gunnarsson leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Bjarni lék á sínum tíma sextán leiki fyrir yngri landsliðin og skoraði í þeim fimm mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn Bjarni Gunnarsson hefur lagt skóna á hilluna. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.
Hann er þriðji leikmaðurinn hjá Fjölni sem leggur skóna á hilluna eftir tímabilið. Fyrir höfðu þeir Guðmundur Þór Júlíusson og Dofri Snorrason kallað þetta gott. Auk þess er fyrirliði Fjölnis frá liðnu tímabili, Hans Viktor Guðmundsson, horfinn á braut, en hann samdi við KA á dögunum.

„Skrokkurinn eldist með hverju ári og virðist eldast aðeins hraðar en aldur segir til. Það er búið að vera meiðslavesen á mér síðustu ár. Ég fór í aðgerð á ökkla 2019, missti af stórum hluta tímabilsins 2021 vegna aðgerðar á mjöðm og missti af öllu tímabilinu 2022 út af aðgerð á hinum ökklanum. Ég er búinn að vera keyra á einhverjum yfirdrætti í einhvern tíma og ákvað að kalla þetta gott eftir tímabilið í ár," sagði Bjarni við Fótbolta.net.
Viðtal við Bjarna verður birt seinna í vikunni. Hann er þrítugur og lék á ferlinum með Fjölni, ÍBV og HK. Hann skoraði alls 224 leiki í deild og bikar á ferlinum og skoraði í þeim 29 mörk.
Á nýliðnu tímabili skoraði hann tíu mörk í átján leikjum fyrir Fjölni.