Yaya Toure yfirgefur Standard Liege til að starfa undir Mancini (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Yaya Touré er búinn að segja upp starfi sínu sem aðstoðarþjálfari Standard Liége í belgíska boltanum til að taka við samskonar starfi hjá sádí-arabíska landsliðinu.
Þar mun hann starfa undir stjórn Ítalans Roberto Mancini, sem var síðast landsliðsþjálfari Ítalíu.
Mancini, sem vann síðasta Evrópumót með Ítalíu, þekkir Yaya Toure vel eftir að þeir störfuðu saman hjá Manchester City.
Mancini þjálfaði Man City frá 2009 til 2013 og var við stjórnvölinn þegar Touré var fenginn til félagsins frá Barcelona. Toure spilaði lykilhlutverk á miðjunni í fyrsta Englandsmeistaraliði Man City á þessari öld - tímabilið 2011-12.
Það verður áhugavert að sjá hvað þessi öfluga tvíeyki tekst að gera með sádí-arabíska landsliðið.