Sú efnilegasta skiptir alfarið í FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Margrét Brynja Kristinsdóttir, sem valin var efnilegasti leikmaður FH á liðnu tímabili, hefur skipt alfarið til félagsins frá uppeldisfélagini Breiðabliki.
Miðjumaðurinn var á láni hjá FH frá Blikum í sumar og lék vel í hvítu og svörtu treyjunni.

„Okkar efnilegasti leikmaður frá síðasta tímabili hefur skrifað undir samning við Fimleikafélagið. Bjóðum Margréti Brynju velkomna og óskum henni til hamingju með varanleg skipti til okkar frá Breiðablik," segir í tikynningu FH.
Samningur hennar við Breiðablik rann út í síðata mánuði og skipti hún í kjölfarið yfir. Hún er 17 ára U19 landsliðskona sem lék með U19 í lok síðasta mánaðar í undankeppni EM 2024.
Margrét lék sína fyrstu meistaraflokksleiki með Augnabliki tímabilið 2020 þegar hún var á 14. aldursári. Í sumar kom hún við sögu í 22 leikjum í deild og bikar og skoraði fjögur mörk.