Fotbolti.net
07.11.23 - 14:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Olgeir áfram hjá Fylki (Staðfest)

Olgeir áfram hjá Fylki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í íslenska slúðurpakkanum sem birtur var hér á Fótbolta.net fyrir helgi var sagt: „Sagan segir að Olgeir Sigurgeirsson verði ekki áfram aðstoðarþjálfari liðsins."

Fótbolti.net heyrði í Olgeiri í dag og hann staðfesti að hann yrði áfram hjá Fylki, hann væri búinn að skrifa undir nýjan samning við félagið. „Ég verð áfram, veit ekki hvaða sögusagnir þetta eru sem eru búnar að vera. Ég er búinn að skrifa undir nýjan samning," sagði Olgeir.
Olgeir er aðstoðarmaður Rúnars Páls Sigmundssonar, var ráðinn aðstoðarmaður hans fyrir tímabilið 2022 og skrifaði þá undir tveggja ára samning.

Olgeir, sem er uppalinn í Eyjum, spilaði lengst af með Breiðabliki á ferlinum og varð meðal annars bikarmeistari árið 2009 og síðan Íslandsmeistari árið eftir.

Hann lék 321 leik fyrir Blika og skoraði 39 mörk en hann spilaði einnig fyrir ÍBV og Völsung.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.