Fotbolti.net
05.11.23 - 10:53
Brynjar Ingi Erluson

Björn Daníel framlengir við FH (Staðfest)

Björn Daníel Sverrisson verður með FH-ingum á næsta tímabili

Björn Daníel Sverrisson verður með FH-ingum á næsta tímabili

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Björn Daníel Sverrisson hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við FH. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Miðjumaðurinn átti að renna út á samningi þann 16. nóvember næstkomandi en hefur nú framlengt dvöl sína í Krikanum út næsta tímabil.

Björn Daníel, sem er 33 ára gamall, er uppalinn FH-ingur, sem hefur spilað lykilhlutverk síðustu fjögur tímabil eða frá því hann kom heim úr atvinnumennsku þar sem hann lék með AGF, Vejle og Viking.

Hann á að baki 212 leiki og 42 mörk í efstu deild með FH-ingum og mun nú fá tækifærið til að bæta við fleiri leikjum á ferilskrána.

Á tíma hans í FH hefur Björn verið Íslandsmeistari þrisvar sinnum og unnið bikarinn einu sinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.