Fotbolti.net
03.11.23 - 22:40
Ívan Guðjón Baldursson

Fyrrum leikmaður Barcelona er nýr þjálfari Jóns Dags (Staðfest)

Fyrrum leikmaður Barcelona er nýr þjálfari Jóns Dags (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Óscar García Junyent hefur verið ráðinn sem nýr þjálfari OH Leuven í efstu deild belgíska boltans eftir slæmt gengi á upphafi tímabils.
Jón Dagur Þorsteinsson er á mála hjá Leuven og var meðal bestu leikmanna liðsins á síðustu leiktíð, en hefur átt erfiðara með markaskorun í haust.

Leuven er í fallbaráttu með 12 stig eftir 12 umferðir, sem er óviðunandi árangur og því var Marc Brys látinn fara um miðjan október.

Jón Dagur er kominn með tvö mörk og tvær stoðsendingar í ellefu deildarleikjum það sem af er tímabils. Hann var tekinn úr byrjunarliðinu eftir brottrekstur Brys en fékk tækifæri í bikarleik í vikunni og lagði upp tvö mörk í þægilegum 5-0 sigri.

Óscar García lék meðal annars fyrir Barcelona, Valencia og Espanyol á ferli sínum sem atvinnumaður í fótbolta auk þess að hafa komið víða við á þjálfaraferlinum.

Hann hefur stýrt félögum á borð við Brighton, Watford, Celta Vigo og RB Salzburg þrátt fyrir að vera aðeins 50 ára gamall.

Fyrrum leikmaður Barcelona er nýr þjálfari Jóns Dags (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.