Fotbolti.net
07.11.23 - 16:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jökull fær tvo til að aðstoða sig (Staðfest) - Björn Berg í nýtt hlutverk

Björn Berg, Jökull og Elías Hlynur.

Björn Berg, Jökull og Elías Hlynur.

Canon

Mynd: Stjarnan

Stjarnan tilkynnti rétt í þessu að þjálfarinn Jökull Elísabetarson væri kominn með tvo menn inn í teymi sitt. Það eru þeir Björn Berg Bryde og Elías Hlynur Lárusson. Þór Sigurðsson verður ekki áfram styrktarþjálfari liðsins en Elite þjálfun mun sjá um hana á komandi tímabili.

„Þór Sigurðsson er fluttur til Spánar til þess að einbeita sér að Doktorsnámi sínu. Þór mun vera félaginu áfram innan handar er snýr að greiningum og fleira. Þór hefur gert rosalega öfluga hluti fyrir liðið og á mjög stóran þátt í því sem við höfum verið að gera og hvar liðið er statt í dag," segir í tilkynningu Stjörnunnar.
Óvíst hvað BBB gerir næst - Þéttasti hópurinn á ferlinum
TENGT EFNI

Óvíst hvað BBB gerir næst - Þéttasti hópurinn á ferlinum


Björn Berg skiptir um hlutverk
Björn Berg Bryde hefur verið leikmaður Stjörnunnar undanfarin ár en skiptir nú um hlutverk og er kominn inn í þjálfarateymið.

„Ég er mjög spenntur fyrir því að koma inn í frábært þjálfarateymi Stjörnunnar. Auðvitað erfið ákvörðun að stíga út úr leikmannahópnum eftir öll þessi ár en ég hef fundið fyrir miklum stuðningi innan Stjörnunnar sem spilaði stóran þátt í þessarri ákvörðun."

Að mínu viti erum við með einstakan hóp í höndunum sem getur farið ennþá lengra. Það er mikil vinna framundan en ég er fullviss um það að við séum með leikmannahópinn, þjálfarana, umgjörðina, stjórnina og að sjálfsögðu stuðningsfólkið til að taka næsta skref."

Ég hlakka mikið til að hefjast handa og hjálpa félaginu að komast á þann stað sem það á heima,”
segir Björn Berg Bryde um hlutverkaskiptin.

„Ég er mjög glaður að Bjössi hafi viljað taka slaginn með okkur áfram í nýju hlutverki. Það verður skemmtilegt og krefjandi fyrir hann að skipta yfir í þjálfara úlpuna. Bjössi er öflugur karakter sem á eftir að reynast liðinu vel,” segir Jökull.

Elías Hlynur efnilegur þjálfari sem hefur starfað hjá Víkingi
Jökull búinn að finna sér aðstoðarmann
TENGT EFNI

Jökull búinn að finna sér aðstoðarmann


„Elías er jákvæður, orkumikill og sýnir mikið frumkvæði og ég er mjög ánægður að fá hann inn í umhverfið okkar. Hann mun styrkja okkur og nær vonandi að bæta sjálfan sig í leiðinni,” segir Jökull um komu Elíasar.

Jökull segir það spennandi að fá Elite þjálfun með sér í lið. „Bogi og Hemmi eru fremstir í þvi sem þeir gera, eru vel stemmdir og ég hef rosalega mikla trú á þeirra innkomu inn í æfingarnar hjá okkur. Þetta er risastórt skref fram á við fyrir okkur."

Jökull: Munum aldrei vita hvort þetta voru mistök eða ekki
TENGT EFNI

Jökull: Munum aldrei vita hvort þetta voru mistök eða ekki

Jökull fær tvo til að aðstoða sig (Staðfest) - Björn Berg í nýtt hlutverk
Canon

Mynd: Stjarnan

Gummi Kri og Þór Sigurðsson.

Gummi Kri og Þór Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.