Fellaini farinn frá Shandong (Staðfest) - Ætlar ekki að leggja skóna á hilluna

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Marouane Fellaini er farinn frá kínverska félaginu Shandong eftir tæpa fimm ára veru, en hann er nú í leit að nýju félagi.
Belgíski miðjumaðurinn kom til Shandong frá Manchester United í byrjun árs 2019.
Hann eyddi sex árum hjá United þar sem hann skoraði 22 mörk í 177 leikjum.
Fellaini, sem er 35 ára gamall, vann enska bikarinn, deildabikarinn og Evrópudeildina á tíma sínum hjá United áður en hann hélt til Kína.
Þar hefur hann skrifað sig í sögubækurnar en á tæpum fimm árum sínum þar vann hann bikarinn þrisvar og deildina einu sinni.
Miðjumaðurinn ætlar ekki að leggja skóna á hilluna eftir farsæla dvöl í Kína og er nú í leit að nýju félagi, en þetta staðfesti umboðsmaður hans í gær.
Fellaini hefur einnig spilað fyrir Everton og Standard Liege á ferlinum, en það gæti vel verið að hugur hans leitar aftur heim til Belgíu.

???????? Marouane Fellaini leaves China side Shandong after 5 years as legend of the club.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) November 4, 2023
He’s now available as free agent, ready for new chapter as his agent denied all recent reports on retirement. pic.twitter.com/xCxz7pEuSn