Doucoure framlengir við Everton (Staðfest) - „Vil halda áfram að berjast fyrir merkið"

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Abdoulaye Doucoure, miðjumaður Everton, er búinn að skrifa undir nýjan samning við félagið og er nú samningsbundinn fram á sumarið 2025.
Hann er þrítugur og hefur spilað 108 leiki fyrir félagið. Hann hefur skorað 13 mörk frá komu sinni í september 2020.

TENGT EFNI
Everton að ganga frá samkomulagi við Doucouré
„Ég elska Everton og er mjög ánægður að framlengja veru mína hér," sagði Doucoure við undirskrift.
„Þetta var mjög auðveld ákvörðun. Ég elska allt fólkið í kringum félagið og alla stuðningsmennina sem hafa sýnt mér svo mikla ást síðustu mánuði. Mín ósk er að vera hér áfram og halda áfram að njóta tíma míns hér."
„Ég berst alltaf fyrir félagið og ég hef alltaf elskað þetta félag. Ég vil halda áfram að læra og ég vil halda áfram að berjast fyrir merkið og félagið," sagði Doucoure.