Fotbolti.net
03.11.23 - 16:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Matti Guðmunds tekur við Gróttu (Staðfest)

Samningurinn handsalaður.

Samningurinn handsalaður.

Canon

Mynd: Grótta

Hertz
Matthías Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Gróttu. Matthías gerir þriggja ára samning við deildina.
Matti Guðmunds í viðræðum um að taka við Gróttu
TENGT EFNI

Matti Guðmunds í viðræðum um að taka við Gróttu

Það var Fótbolti.net sem sagði fyrst frá þeim tíðindum að Matthías væri í viðræðum við Gróttu fyrr í vikunni.

Matthías, sem er 43 ára gamall, hefur síðustu árin starfað sem aðstoðarþjálfari Péturs Péturssonar hjá Íslandsmeisturum Vals. Hann var á sínum tíma öflugur leikmaður sem spilaði Val, FH, Haukum og KH. Hann spilaði jafnframt fjóra A-landsleiki fyrir Íslands hönd.

„Ég er mjög spenntur fyrir því að fá tækifæri til að þjálfa svona flottan klúbb eins og Gróttu. Hópurinn er flottur með góðan kjarna af leikmönnum sem hafa spilað lengi saman og efnilegar stelpur að koma upp. Einnig er stefna félagsins mjög spennandi og umgjörðin alveg til fyrirmyndar. Ég hlakka mikið til að hitta hópinn og komast út á æfingasvæðið," segir Matthías.

Við sama tilefni var það tilkynnt að Melkorka Katrín Flygenring Pétursdóttir hefði skrifað undir tveggja ára samning sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Gróttu. Melkorka hefur síðasta árið verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Gróttu ásamt því að vera aðalþjálfari 5. flokks kvenna og heldur hún því góða starfi áfram hjá deildinni. Melkorka er á lokaári meistaranáms í sjúkraþjálfun og hefur lokið UEFA B þjálfararéttindum.

„Ég er gríðarlega ánægð að hafa skrifað undir nýjan samning og hlakka til að vinna áfram í því frábæra umhverfi sem Grótta hefur upp á að bjóða. Ég hlakka mikið til að vinna áfram með leikmönnum og fólkinu í kringum liðið. Einnig er frábært að hafa fengið Matta inn í þetta og ég hlakka til samstarfsins. Það eru spennandi tímar framundan á Nesinu," segir Melkorka.

Knattspyrnudeild Gróttu fagnar því að hafa samið við Matthías og Melkorku og hlakkar til komandi samstarfs við þau bæði. Harpa Frímannsdóttir: „Við í stjórn knattspyrnudeildar erum gríðarlega ánægð að hafa fengið Matthías sem þjálfara liðsins, hann mun koma með ferskan blæ og mikla reynslu inn í starfið. Einnig fögnum við endurráðningu Melkorku aðstoðarþjálfara sem þekkir liðið vel og ég tel víst að þau munu ná vel saman og ná því besta fram."

Grótta hafnaði í sumar í fjórða sæti Lengjudeildar kvenna en liðið var ekki langt frá því að komast upp í Bestu deildina.
Matthías og Melkorka.

Matthías og Melkorka.

Canon

Mynd: Grótta

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.