Fotbolti.net
03.11.23 - 16:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Gareth Owen í þjálfarateymi Rúnars hjá Fram (Staðfest)

Nýr markmannsþjálfari Fram.

Nýr markmannsþjálfari Fram.

Canon

Mynd: Fram

Fram hefur ráðið hinn breska Gareth Owen til starfa hjá félaginu en hann tekur við stöðu yfirmarkvarðarþjálfara.

Daði Lárusson hefur síðustu ár þjálfað markverði félagsins en hann hefur núna yfirgefið félagið.
„Þessi ráðning er mjög stórt skref í því markmiði að skapa sem besta umgjörð fyrir okkar iðkendur. Ásamt því að þjálfa markmenn meistaraflokks karla, kvenna og yngri flokka, þá mun Gareth einnig vera í aðstoðarteymi Rúnars Kristinssonar," segir í tilkynningu Fram.

Gareth er kunnugur Íslandi en hann hefur starfað hjá Gróttu síðastliðin ár þar sem hann var yfirmarkmannsþjálfari sem og aðstoðarþálfari meistaraflokks karla. Fyrir það starfaði Gareth hjá Chelsea og Velska knattspyrnusambandinu. Sem leikmaður var Gareth á mála hjá bæði Sheffield United og Swansea City.

„Bjóðum Gareth hjartanlega velkominn í Úlfarsárdalinn!" segir í tilkynningu Fram.

Rúnar Kristinsson var á dögunum ráðinn þjálfari Fram og er Owen sá fyrsti sem kemur inn í þjálfarateymi hans. Ole Martin Nesselquist, aðstoðarþjálfari KR, hefur verið orðaður við stöðu aðstoðarþjálfara Fram að undanförnu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.