Phil Neville nýr þjálfari Portland Timbers (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Phil Neville hefur verið ráðinn þjálfari Portland Timbers í Bandaríkjunum og skrifar hann undir samning til ársins 2026.
Þessi fyrrum leikmaður Manchester United, Everton og enska landsliðsins hefur verið án starfs síðan í júní þegar hann var látinn fara sem stjóri Inter Miami.
Þar á undan stýrði Neville, sem er 46 ára, enska kvennalandsliðinu í þrjú ár.

Portland missti af sæti í úrslitakeppni MLS deildarinnar á þessu tímabili og spilar því ekki aftur fyrr en á nýju tímabili.
Síðasti þjálfari var Venesúelamaðurinnn Giovanni Saverese sem stýrði liðinu í sex ár. Hann var látinn fara í ágúst og var Bandaríkjamaðurinn Miles Joseph bráðabirgðaþjálfari undanfarna tvo mánuði.