Fotbolti.net
04.11.23 - 15:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ólafur Íshólm framlengir við Fram (Staðfest)

Ólafur Íshólm framlengir við Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Íshólm Ólafsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Fram.

Þessi 28 ára gamli markvörður gekk til liðs við félagið árið 2019 á láni frá Breiðabliki en skrifaði undir tveggja ára samning fyrir tímabilið 2020.

Hann var í lykilhlutverki þegar liðið tryggði sér sæti í efstu deild sumarið 2021 og var valinn íþróttamaður Fram það ár. Auk þess að vera aðalmarkvörður liðsins hefur hann gegnt stöðu varafyrirliða.

Ljóst er að hann mun því vera hluti af liðinu sem verður undir stjórn Rúnars Kristinssonar næsta sumar en hann tók við þjálfun liðsins í síðasta mánuði.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.