Gbamin í frönsku B-deildina (Staðfest)
Jean-Philippe Gbamin er genginn í raðir franska B-deildarliðsins USL Dunkerque.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25162 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Jean-Philippe Gbamin er genginn í raðir franska B-deildarliðsins USL Dunkerque.
Haukur Páll Sigurðsson er nýr aðstoðarþjálfari hjá karlaliði Vals. Hann skrifar undir þriggja ára samning við félagið. Frá þessu er greint í færslu félagsins á samfélagsmiðlum. <i>„Hauk Pál þekkjum við vel enda verið leikmaður Vals frá árinu 2010, verið fyrirliði liðsins um àrabil og er leikjahæsti leikmaður Vals í efstu deild frá upphafi. Það er mikil ánægja að njóta krafta hans í nýju hlutverki. Við bjóðum Hauk Pál velkominn í teymið og hlökkum til samstarfsins! "</I> segir í færslu Vals.
Valur tilkynnti í dag að Hallgrímu Heimisson hefði skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Hann er ráðinn sem aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokki kvenna. Hann hefur undanfarin ár starfað fyrir Val við þjálfun yngri flokka með góðum árangri. <i>„Við bjóðum Hallgrím velkominn í teymið og hlökkum til samstarfsins!"</I> segir í tilkynningu Vals.
Hollenski þjálfarinn Alfred Schreuder er hættur með lið Al-Ain í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, en Hernan Crespo mun taka við keflinu af honum.
Nuno Espirito Santo var í kvöld rekinn frá sádi-arabíska félaginu Al-Ittihad eftir rúmlega ár í starfi.
Olga Sevcova hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við ÍBV og lánuð í kjölfarið til Fenerbahce í Tyrklandi. Þetta kemur fram á ÍBVSport í dag.
Notts County í ensku D-deildinni hefur gert stuttan samning við miðjumanninn reynslumikla, Dan Gosling.
Vestri hefur tilkynnt að Ibrahima Balde hafi skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Miðjumaðurinn kom til félagsins fyrir tímabilið 2023, lék 23 leiki í sumar og skoraði tvö mörk. Balde er 27 ára senegalskur miðjumaður sem kom frá EL Palo á Spáni. Hann mun spila með Vestra í Bestu deildinni á næsta tímabili.
Bristol City hefur ráðið Liam Manning sem nýjan stjóra félagsins. Manning er 38 ára og tekur við starfinu af Nigel Pearson sem var rekinn í síðasta mánuði. Bristol City hafði tapað fimm af sjö leikjum undir stjórn Pearson og var í fimmtánda sæti Championship þegar honum var sparkað en hefur nú náð að lyfta sér upp í það ellefta.
Stjarnan tilkynnti rétt í þessu að þjálfarinn Jökull Elísabetarson væri kominn með tvo menn inn í teymi sitt. Það eru þeir Björn Berg Bryde og Elías Hlynur Lárusson. Þór Sigurðsson verður ekki áfram styrktarþjálfari liðsins en Elite þjálfun mun sjá um hana á komandi tímabili. <i>„Þór Sigurðsson er fluttur til Spánar til þess að einbeita sér að Doktorsnámi sínu. Þór mun vera félaginu áfram innan handar er snýr að greiningum og fleira. Þór hefur gert rosalega öfluga hluti fyrir liðið og á mjög stóran þátt í því sem við höfum verið að gera og hvar liðið er statt í dag,"</I> segir í tilkynningu Stjörnunnar.
Í íslenska slúðurpakkanum sem birtur var hér á Fótbolta.net fyrir helgi var sagt: <i>„Sagan segir að Olgeir Sigurgeirsson verði ekki áfram aðstoðarþjálfari liðsins."</I> Fótbolti.net heyrði í Olgeiri í dag og hann staðfesti að hann yrði áfram hjá Fylki, hann væri búinn að skrifa undir nýjan samning við félagið. <i>„Ég verð áfram, veit ekki hvaða sögusagnir þetta eru sem eru búnar að vera. Ég er búinn að skrifa undir nýjan samning,"</I> sagði Olgeir.
Phil Neville hefur verið ráðinn þjálfari Portland Timbers í Bandaríkjunum og skrifar hann undir samning til ársins 2026. Þessi fyrrum leikmaður Manchester United, Everton og enska landsliðsins hefur verið án starfs síðan í júní þegar hann var látinn fara sem stjóri Inter Miami. Þar á undan stýrði Neville, sem er 46 ára, enska kvennalandsliðinu í þrjú ár.
Fram er búið að tryggja sér þjónustu Kyle Douglas McLagan sem snýr aftur til félagsins eftir tveggja ára fjarveru.
Margrét Brynja Kristinsdóttir, sem valin var efnilegasti leikmaður FH á liðnu tímabili, hefur skipt alfarið til félagsins frá uppeldisfélagini Breiðabliki. Miðjumaðurinn var á láni hjá FH frá Blikum í sumar og lék vel í hvítu og svörtu treyjunni.
Björn Daníel Sverrisson hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við FH. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Marouane Fellaini er farinn frá kínverska félaginu Shandong eftir tæpa fimm ára veru, en hann er nú í leit að nýju félagi.
<p>Ólafur Íshólm Ólafsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Fram.</p>
Dvöl Anwar El Ghazi hjá Mainz í fallbaráttu þýsku deildarinnar var stutt. Hann fékk að rifta samningi sínum við PSV Eindhoven í september til að skrifa undir hjá Mainz á frjálsri sölu.
Óscar García Junyent hefur verið ráðinn sem nýr þjálfari OH Leuven í efstu deild belgíska boltans eftir slæmt gengi á upphafi tímabils.
Yaya Touré er búinn að segja upp starfi sínu sem aðstoðarþjálfari Standard Liége í belgíska boltanum til að taka við samskonar starfi hjá sádí-arabíska landsliðinu.