Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24445 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR24.08.2023, 15:00

Eftir eins og hálfs árs ferli er Tumeliso kominn í Gróttu (Staðfest)

Grótta greindi frá því í dag að Lesótómaðurinn Tumeliso Ratsiu væri genginn í raðir félagsins og kemur hann til landsins í dag. Hann verður í leikmannahópi liðsins í leiknum mikilvæga gegn Þrótti á morgun. Tumeliso er 19 ára gamall sóknarmaður sem hefur æft og stundað nám í Kick4Life akademíunni í Lesóto frá 10 ára aldri. Þar starfaði Paul Westren við góðan orðstír en hann er í dag yfirþjálfari yngri flokka Gróttu.

FRÉTTIR24.08.2023, 14:41

Brasilíska ungstirnið Deivid Washington til Chelsea (Staðfest)

Chelsea hefur gengið frá kaupum á brasilíska framherjanum Deivid Washington frá Santos fyrir um 17, 2 milljónir punda. Hann kyssti Chelsea merkið þegar hann var kynntur. Þessi átján ára gamli leikmaður skrifaði undir sjö ára samning á Stamford Bridge en honum er lýst sem fjölhæfum sóknarmanni. Hann spilaði níu aðalliðsleiki fyrir Santos og skoraði tvö mörk. Washington er níundi leikmaðurinn sem Chelsea kaupir í sumarglugganum.

FRÉTTIR24.08.2023, 14:07

Laporte til Al Nassr (Staðfest)

Aymeric Laporte er genginn í raðir Al Nassr í Sádi-Arabíu frá Manchester Ciyt. Al Nassr greiðir 25 milljónir punda fyrir miðvörðinn sem skrifar undir þriggja ára samning. Franski Baskinn var í fimm og hálft ár hjá City og vann þar 13 stóra titla. Hann kom frá Athetlic á Spáni í janúar 2018 og lék 180 leiki fyrir félagið.

FRÉTTIR24.08.2023, 13:00

Man Utd lánar Williams til Ipswich (Staðfest)

Manchester United hefur lánað Brandon Williams til Ipswich út tímabilið. Williams er réttfættur vinstri bakvörður sem uppalinn er hjá United. Hann á að baki 51 keppnisleik með United. Á síðasta tímabili kom hann við sögu í einum leik og tímabilið þar á undan var hann á láni hjá Norwich.

FRÉTTIR24.08.2023, 07:20

Lens borgar yfir 30 milljónir fyrir Elye Wahi (Staðfest)

Franska félagið Lens er búið að bæta félagsmetið sitt á leikmannamarkaðinum eftir að hafa verið spútnik lið síðustu leiktíðar í efstu deild franska boltans. Liðið endaði í öðru sæti, aðeins einu stigi eftir Frakklandsmeisturum PSG.

FRÉTTIR23.08.2023, 21:56

Grimaldo og Stanisic til Leverkusen (Staðfest)

Xabi Alonso er að styrkja leikmannahópinn hjá Bayer Leverkusen í sumar og var að krækja í tvo öfluga varnarmenn. Annar þeirra er hinn öflugi Alex Grimaldo sem var meðal annars orðaður við Arsenal og FC Bayern í sumar.

FRÉTTIR23.08.2023, 17:37

Bernardo Silva búinn að framlengja (Staðfest)

Bernardo Silva er búinn að skrifa undir nýjan samning við Manchester City sem gildir næstu þrjú árin, eða til 2026. Hann var áður samningsbundinn félaginu til 2025.

FRÉTTIR23.08.2023, 16:52

Valur selur Kristófer til Triestina (Staðfest)

Valur staðfesti í dag að félagið hefði náð samkomulagi við Triestina Calcio á Ítalíu. Samkomulagið er á þá leið að ítalska félagið kaupir Kristófer af Val.

FRÉTTIR23.08.2023, 06:00

Milan fær argentínskan miðvörð (Staðfest)

AC Milan hefur nælt í hinn 21 árs gamla Marco Pellegrino frá argentínska félaginu Platense. Hann skrifar undir fimm ára samning.

Fabrizio Romano greinir frá því að kaupverðið sé 3 milljónir evra.

FRÉTTIR22.08.2023, 20:06

Logi Tómasson til Strömsgodset (Staðfest)

Logi Tómasson er genginn í raðir norska félagsins Strömsgodset sem kaupir hann af uppeldisfélaginu Víkingi. Vinstri bakvörðurinn skrifar undir þriggja ára samning. Logi verður 23 ára í næsta mánuði og hefur hann verið einn allra besti vinstri bakvörður landsins undanfarin ár. Hann lék í fyrra sína fyrstu tvo A-landsleiki.

FRÉTTIR22.08.2023, 17:07

Mavropanos til West Ham (Staðfest) - Spenntur að mæta aftur í úrvalsdeildina

West Ham hefur gengið frá kaupum á Konstantinos Mavropanos frá Stuttgart. Mavropanos er grískur landsliðsmiðvörður sem var á mála hjá Arsenal á árunum 2018-2022. Mavropanos skrifar undir fimm ára samning. Kaupverðið er sautján milljónir punda og svo getur Stuttgart fengið tvær milljónir punda til viðbótar í árangurstengdum greiðslum.

FRÉTTIR22.08.2023, 14:30

Kompany kaupir sinn fyrrum lærisvein til Burnley (Staðfest)

Burnley hefur gengið frá kaupum á belgíska miðverðinum Hannes Delcroix og kemur hann frá belgíska félaginu Anderlecht. Kaupverðið er óuppgefið. Vincent Kompany, stjóri Burnley, var þjálfari Anderlecht og lék Delcroix því undir stjórn Kompany þar.

FRÉTTIR22.08.2023, 10:27

Lewis Hall í Newcastle (Staðfest)

Newcastle hefur tilkynnt um komu bakvarðarins efnilega Lewis Hall til félagsins. Hall kemur til Newcastle á láni út tímabilið en svo er skylda hjá félaginu að kaupa hann næsta sumar fyrir 28 milljónir punda. Kaupverðið gæti svo hækkað í allt að 35 milljónir punda.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.