Hinn fjölhæfi Nick Kaajimolen í Njarðvík (Staðfest)

Nick Kaajimolen.

Mynd: Njarðvík

Nick Kaajimolen.

Mynd: Njarðvík

Njarðvík hefur tilkynnt það að félagið krækti í hinn fjölhæfa Nick Kaajimolen áður en félagaskiptaglugginn lokaði.
Fótbolti.net sagði fyrst frá þessu fyrir tæpri viku síðan.
Kaajimolen er 22 ára og verður 23 síðar í þessum mánuði. Hann lék síðast á Kýpur.
Á Transfermarkt er tekið fram að hann sé réttfættur og spili oftast sem djúpur miðjumaður. Hann hafi þó einnig spilað sem miðvörður og á miðri miðju.
Hann lék síðast í B- og C-deild á Kýpur en lék á sínum tíma eitt tímabil í Svíþjóð með Ivan Bubalo sem lék hér á Íslandi með Hetti/Hugin og Fram.
„Nick er ætlað að hjálpa til við að þétta raðirnar hjá Njarðvíkurliðinu fyrir síðustu fjóra leiki tímabilsins þar sem baráttan um að halda sæti okkar í deildinni er mikil. Knattspyrnudeildin býður Nick hjartanlega velkominn til Njarðvíkur," segir í tilkynningu Njarðvíkinga.
Njarðvík er sem stendur einu stigi frá fallsæti í Lengjudeildinni en næsti leikur liðsins er útileikur við Þór á föstudaginn.