Fotbolti.net
24.08.23 - 14:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Laporte til Al Nassr (Staðfest)

Laporte til Al Nassr (Staðfest)
Canon

Mynd: Al Nassr

Aymeric Laporte er genginn í raðir Al Nassr í Sádi-Arabíu frá Manchester Ciyt. Al Nassr greiðir 25 milljónir punda fyrir miðvörðinn sem skrifar undir þriggja ára samning.

Franski Baskinn var í fimm og hálft ár hjá City og vann þar 13 stóra titla. Hann kom frá Athetlic á Spáni í janúar 2018 og lék 180 leiki fyrir félagið.
Laporte er 29 ára gamall, fæddur í Frakklandi en var í maí 2021 veitt leyfi til að spila fyrir Spán. Áður hafði hann gefið það út að hann myndi aldrei spila fyrir Spán þar sem hann myndi ekki sækja um tvöfaldan ríkisborgararétt. Í kjölfarið var hann svo valinn í spænska landsliðið fyrir EM alls staðar.

Laporte er örvfættur miðvörður sem hittir hjá Al Nassr fyrir þá Cristiano Ronaldo, Seko Fofana, Sadio Mane, Alex Telles, Talisca, Marcelo Brozovic og Otavio.




Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.