Lewis Hall í Newcastle (Staðfest)

Lewis Hall.

Mynd: Newcastle

Lewis Hall.

Mynd: Newcastle
Newcastle hefur tilkynnt um komu bakvarðarins efnilega Lewis Hall til félagsins.
Hall kemur til Newcastle á láni út tímabilið en svo er skylda hjá félaginu að kaupa hann næsta sumar fyrir 28 milljónir punda. Kaupverðið gæti svo hækkað í allt að 35 milljónir punda.

Hall er aðeins 18 ára gamall en hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað tólf leiki fyrir aðallið Chelsea.
Hall hefur spilað fyrir öll yngri landslið Englands og þá var hann valinn besti leikmaður akademíunnar hjá Chelsea á síðasta tímabili og því mikið efni hér á ferð.
„Ég er mjög stoltur," segir Hall. „Ég og fjölskylda mín höldum með Newcastle. Ég get ekki beðið eftir því að byrja."
Eddie Howe, stjóri Newcastle, fagnar því að fá Hall inn í liðið. „Hann er leikmaður sem við höfum fylgst mikið, rétt eins og mörg önnur félög hafa gert. Það er ánægjulegt að leikmaður með hans gæði og fjölhæfni sé kominn í hópinn hjá okkur."
Howe telur að Hall geti náð ansi langt en Newcastle hefur í sumar keypt tvo leikmenn sem hafa á síðustu árum verið valdir bestir í akademíunni hjá Chelsea: Lewis Hall og Tino Livramento.