Fotbolti.net
22.08.23 - 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kompany kaupir sinn fyrrum lærisvein til Burnley (Staðfest)

Kompany kaupir sinn fyrrum lærisvein til Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: Burnley

Burnley hefur gengið frá kaupum á belgíska miðverðinum Hannes Delcroix og kemur hann frá belgíska félaginu Anderlecht.

Kaupverðið er óuppgefið. Vincent Kompany, stjóri Burnley, var þjálfari Anderlecht og lék Delcroix því undir stjórn Kompany þar.
Delcroix er 24 ára og á að baki einn A-landsleik sem kom í nóvember 2020. Hann skrifar undir þriggja ára samning við Burnley.

Hann er fæddur á Haítí en hefur alla tíð spilað í Belgíu ef frá er talið eitt tímabil með RKC Waalwijk á láni í Hollandi.

Delcroix er tíundi leikmaðurinn sem Burnley fær í sínar raðir í sumar.

<b>Enski boltinn</B> - Fáránleg dómgæsla og Szobo betri kostur en Mount

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.