Fotbolti.net
23.08.23 - 21:56
Ívan Guðjón Baldursson

Grimaldo og Stanisic til Leverkusen (Staðfest)

Grimaldo og Stanisic til Leverkusen (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Xabi Alonso er að styrkja leikmannahópinn hjá Bayer Leverkusen í sumar og var að krækja í tvo öfluga varnarmenn. Annar þeirra er hinn öflugi Alex Grimaldo sem var meðal annars orðaður við Arsenal og FC Bayern í sumar.

Grimaldo kemur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Benfica rann út. Hann er 27 ára gamall og spilar sem sókndjarfur vinstri bakvörður.

Hann hefur verið algjör lykilmaður í liði Benfica undanfarin ár og hefur skorað 14 mörk og gefið 25 stoðsendingar síðustu tvö tímabil.

Grimaldo er spænskur og á 21 landsleik að baki fyrir yngri landsliðin, en hefur ekki fengið tækifæri með A-landsliðinu. Hann skrifar undir fjögurra ára samning við Leverkusen.

Hinn varnarmaðurinn er Josip Stanisic sem kemur á lánssamningi frá Þýskalandsmeisturum FC Bayern. Stanisic er gríðarlega fjölhæfur varnarmaður sem getur spilað í báðum bakvarðarstöðunum, sem miðvörður og sem varnarsinnaður miðjumaður.

Hann er 23 ára gamall og á ellefu landsleiki að baki fyrir Króatíu. Hann spilaði 23 leiki fyrir Bayern á síðustu leiktíð og var oft valinn framyfir Joao Cancelo.

Þar að auki var Leverkusen að krækja í sókndjarfan hægri bakvörð frá Brasilíu. Sá heitir Arthur og er 20 ára gamall.

Þýska félagið borgar um 7 milljónir evra fyrir Arthur sem kemur úr röðum América Mineiro. Arthur var mikilvægur hlekkur í U20 landsliði Brasilíu og á einn A-landsleik að baki.

Leverkusen hefur verið í stuði á leikmannamarkaðinum í sumar og er einnig búið að krækja í leikmenn á borð við Granit Xhaka, Jonas Hofmann og Victor Boniface.

Grimaldo og Stanisic til Leverkusen (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.