Fotbolti.net
24.08.23 - 08:20
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Zakharyan og André Silva til Sociedad (Staðfest)

Zakharyan var lykilmaður upp yngri landslið Rússa.

Zakharyan var lykilmaður upp yngri landslið Rússa.

Canon

Mynd: EPA

Real Sociedad er búið að krækja í þrjá leikmenn í sumar og er hinn eftirsótti Arsen Zakharyan einn þeirra. 

Zakharyan er einn af allra efnilegustu leikmönnum Rússlands og kemur hann úr röðum Dynamo Moskvu fyrir 13 milljónir evra, auk árangurstengdra aukagreiðslna. Hann átti aðeins um ár eftir af samningi sínum við Dynamo.

Zakharyan er tvítugur miðjumaður sem hefur meðal annars verið orðaður við Ajax, Barcelona og Chelsea síðasta árið. Hann er sókndjarfur leikmaður sem kann best við sig í holunni fyrir aftan fremsta fremsta mann og á sjö A-landsleiki að baki fyrir Rússland.

Chelsea komst gríðarlega nálægt því að krækja í Zakharyan í vor en leikmaðurinn er talinn hafa hafnað tækifærinu, hann vill fá byrjunarliðssæti hjá sínu nýja félagi.

Sociedad er einnig búið að krækja í portúgalska framherjann André Silva á lánssamningi frá RB Leipzig. Silva er 27 ára Portúgali sem skoraði 9 mörk í 44 leikjum á síðustu leiktíð.

Hann á þrjú ár eftir af samningi við Leipzig og er þýska félagið reiðubúið til að selja þennan portúgalska landsliðsmann, sem á 19 mörk í 53 leikjum.

Þriðji leikmaðurinn sem félagið hefur fengið inn í sumar er Hamari Traoré sem kemur á frjálsri sölu frá Rennes í Frakklandi.

Traore er 31 árs hægri bakvörður sem gerir tveggja ára samning við spænska félagið, eftir að hafa verið fastamaður í byrjunarliði Rennes undanfarin ár. Traore á 47 landsleiki að baki fyrir Malí.

Þetta eru frábærar fréttir fyrir Sociedad sem leikur í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í haust.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.