Fotbolti.net
24.08.23 - 07:20
Ívan Guðjón Baldursson

Lens borgar yfir 30 milljónir fyrir Elye Wahi (Staðfest)

Lens borgar yfir 30 milljónir fyrir Elye Wahi (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Franska félagið Lens er búið að bæta félagsmetið sitt á leikmannamarkaðinum eftir að hafa verið spútnik lið síðustu leiktíðar í efstu deild franska boltans. Liðið endaði í öðru sæti, aðeins einu stigi eftir Frakklandsmeisturum PSG.

Lens seldi lykilmann sinn Loïs Openda til RB Leipzig og miðjumanninn Seko Fofana til Al-Nassr og er búið að nota hluta af þeim pening til að kaupa nýja leikmenn. Wahi var nýlega til umtals í hlaðvarpsþættinum Ungstirnin á mánudaginn en það má hlusta á hann hér.

Elye Wahi er kominn úr röðum Montpellier fyrir 30 milljónir evra en kaupverðið getur farið upp í 35 milljónir með árangurstengdum aukagreiðslum, auk þess sem Montpellier heldur hlutfalli af endursölurétti framherjans.

Wahi er 20 ára gamall og hefur verið mikilvægur hlekkur upp yngri landslið Frakka, en hann skoraði 19 mörk í 33 deildarleikjum á síðustu leiktíð og gaf 6 stoðsendingar.

Chelsea og West Ham voru orðuð við Wahi í sumar en Lens tryggði sér leikmanninn að lokum.

Auk þess að krækja í Wahi er Lens einnig búið að næla sér í Angelo Fulgini frá Mainz og Oscar Cortés frá Millionarios FC í Kólumbíu.

Fulgini er 27 ára miðjumaður sem var algjör lykilmaður í liði Angers þar til hann skipti yfir í þýska boltann í fyrra. Hann fann ekki taktinn hjá Mainz og var lánaður til Lens í janúar þar sem hann leysti mikilvægt hlutverk í vor. Lens borgar 7 milljónir evra fyrir.

Cortes er 19 ára gamall og er lykilmaður í U20 landsliði Kólumbíu. Hann leikur sem sóknarsinnaður miðjumaður og á einn A-landsleik að baki. 

Lens borgar 4,5 milljónir evra fyrir Cortes, en Millionarios halda 20% af endursölurétti leikmannsins.

Lens borgar yfir 30 milljónir fyrir Elye Wahi (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Lens borgar yfir 30 milljónir fyrir Elye Wahi (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.