Logi Tómasson til Strömsgodset (Staðfest)

Frá vinstri: Jostein Flo (yfirmaður fótboltamála hjá Strömsgodset), Logi Tómasson og Ólafur Garðasson (umboðsmaður Loga).

Mynd: Stromsgodset

Frá vinstri: Jostein Flo (yfirmaður fótboltamála hjá Strömsgodset), Logi Tómasson og Ólafur Garðasson (umboðsmaður Loga).

Mynd: Stromsgodset
Logi Tómasson er genginn í raðir norska félagsins Strömsgodset sem kaupir hann af uppeldisfélaginu Víkingi. Vinstri bakvörðurinn skrifar undir þriggja ára samning.
Logi verður 23 ára í næsta mánuði og hefur hann verið einn allra besti vinstri bakvörður landsins undanfarin ár. Hann lék í fyrra sína fyrstu tvo A-landsleiki.
Logi verður 23 ára í næsta mánuði og hefur hann verið einn allra besti vinstri bakvörður landsins undanfarin ár. Hann lék í fyrra sína fyrstu tvo A-landsleiki.
Hjá Strömsgodset hittir Logi fyrir miðvörðinn Ara Leifsson. Liðið er í 10. sæti deildarinnar og næsti leikur liðsins er um aðra helgi.
Logi lagði upp tvö mörk og lagði upp þrjú í Bestu deildinni í sumar. Hann sagði við Stöð 2 Sport að hann gæti spilað sem vængbakvörður, miðvörður og miðjumaður hjá norska liðinu sem spilar með þriggja miðvarða kerfi. Hans aðalstaða verði þó væntanlega sem vængbakvörður.
????? pic.twitter.com/4Yt7ahQ9Zd
— Strømsgodset Fotball (@godset) August 22, 2023




