
Man City lánar Perrone í spænsku deildina (Staðfest)


Mynd: Man City


Mynd: EPA


Mynd: Man City
Las Palmas er búið að krækja í nokkra leikmenn í sumar eftir að hafa komist upp um deild á síðustu leiktíð.
Las Palmas leikur því í efstu deild spænska boltans á tímabilinu og var að tryggja sér Máximo Perrone á lánssamningi frá Englandsmeisturum Manchester City.
Perrone er tvítugur miðjumaður sem var á bekknum hjá City í 1-0 sigri gegn Newcastle um síðustu helgi. Man City keypti Perrone frá argentínska félaginu Velez Sarsfield í janúar og borgaði rúmlega 10 milljónir evra fyrir.
Perrone á leiki að baki fyrir yngri landslið Argentínu og kom hann við sögu í tveimur leikjum með City í vor. Hann mun berjast um byrjunarliðssæti á miðjunni hjá Las Palmas, sem er einnig búið að krækja í Daley Sinkgraven frá Bayer Leverkusen.
Sinkgraven er 28 ára gamall og kemur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Leverkusen rann út. Hann er vinstri bakvörður að upplagi en getur einnig spilað á miðjunni.
Sinkgraven kom við sögu í 78 leikjum á fjórum árum hjá Leverkusen en þar áður spilaði hann 86 leiki fyrir Ajax. Hann á leiki að baki fyrir yngri landslið Hollands en hefur aldrei fengið tækifæri með A-liðinu.
Þar að auki er Las Palmas búið að næla sér í markvörðinn Aarón Escandell, varnarmanninn Mika Mármol, miðjumanninn Javi Muñoz og framherjann Cristian Herrera í sumar. Þá fékk félagið einnig mexíkóska ungstirnið Julián Araujo á láni frá Barcelona.
???? ¡La espera terminó!
— UD Las Palmas (@UDLP_Oficial) August 23, 2023
¡????????????????????????????, bienvenido a la familia amarilla! ??????#LaUniónHaceLasPalmas ???????? pic.twitter.com/OK3QOsAIOm


Mynd: EPA




