Fotbolti.net
23.08.23 - 18:08
Ívan Guðjón Baldursson

Montiel kominn til Nottingham Forest (Staðfest)

Montiel kominn til Nottingham Forest (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Nottingham Forest er búið að staðfesta komu argentínska landsliðsmannsins Gonzalo Montiel á lánssamningi frá Sevilla.

Montiel er argentínskur hægri bakvörður sem spilaði 43 leiki fyrir Sevilla á síðustu leiktíð.

Montiel er 26 ára gamall og á hann 23 landsleiki að baki fyrir Argentínu. Það fylgir kaupmöguleiki með lánssamningnum og getur Forest því fest kaup á leikmanninum fyrir svo lítið sem 11 milljónir evra.

Montiel var hjá River Plate í Argentínu áður en hann var fenginn í spænska boltann. Hjá Forest mun hann berjast við nokkra leikmenn um byrjunarliðssæti þar sem félagið er með mikið af leikmönnum sem geta leyst hægri bakvarðarstöðuna af hólmi.

Serge Aurier, Neco Williams, Giulian Biancone og Ola Aina eru allir hjá félaginu auk Mohamed Dräger. Williams og Aina hafa þó verið að spila sem vinstri vængbakverðir í fimm manna varnarlínu undir stjórn Steve Cooper.

Bono og Montiel fögnuðu sigrinum gegn Roma í úrslitaleik Evrópudeildarinnar, en þeir eru báðir farnir frá Sevilla.

Bono og Montiel fögnuðu sigrinum gegn Roma í úrslitaleik Evrópudeildarinnar, en þeir eru báðir farnir frá Sevilla.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.