Fotbolti.net
23.08.23 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Milan fær argentínskan miðvörð (Staðfest)

Marco Pellegrino.

Marco Pellegrino.

Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan hefur nælt í hinn 21 árs gamla Marco Pellegrino frá argentínska félaginu Platense. Hann skrifar undir fimm ára samning.

Fabrizio Romano greinir frá því að kaupverðið sé 3 milljónir evra.

Pellegrino er uppalinn hjá Platense en hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið félagsins í mars síðastliðnum. Hann lék 17 leiki fyrir félagið og skoraði eitt mark.

Hann er níundi leikmaðurinn sem Milan fær í sumar en Sandro Tonali yfirgaf félagið og gekk til liðs við Newcastle.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.