Bernardo Silva búinn að framlengja (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Bernardo Silva er búinn að skrifa undir nýjan samning við Manchester City sem gildir næstu þrjú árin, eða til 2026. Hann var áður samningsbundinn félaginu til 2025.
Portúgalinn knái var gríðarlega eftirsóttur í sumar og sterklega orðaður við félagsskipti frá Man City en hefur nú bundið enda á þá orðróma með því að gera nýjan samning.
„Hérna hjá Manchester City get ég haldið áfram að vinna titla. Ég elska félagið, stjórann, liðsfélagana, stuðningsmenn og alla sem starfa í kringum félagið," sagði Bernardo meðal annars við undirskriftina. „Ég er himinlifandi með að gera nýjan samning, það er mjög spennandi að vera partur af svona hungruðum og ástríðufullum leikmannahópi."
Bernardo er 29 ára gamall og hefur komið að 114 mörkum í 308 leikjum á rétt rúmum sex árum hjá City. Hann var í lykilhlutverki er félagið vann sögulega þrennu á síðustu leiktíð.
"It's been a dream" ????
— Manchester City (@ManCity) August 23, 2023




