Fotbolti.net
24.08.23 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Eftir eins og hálfs árs ferli er Tumeliso kominn í Gróttu (Staðfest)

Eftir eins og hálfs árs ferli er Tumeliso kominn í Gróttu (Staðfest)
Canon

Mynd: Kick4Life

Lengjudeildin
Grótta greindi frá því í dag að Lesótómaðurinn Tumeliso Ratsiu væri genginn í raðir félagsins og kemur hann til landsins í dag. Hann verður í leikmannahópi liðsins í leiknum mikilvæga gegn Þrótti á morgun.

Tumeliso er 19 ára gamall sóknarmaður sem hefur æft og stundað nám í Kick4Life akademíunni í Lesóto frá 10 ára aldri. Þar starfaði Paul Westren við góðan orðstír en hann er í dag yfirþjálfari yngri flokka Gróttu.
Úr tilkynningu Gróttu:
Tumi, eins og hann er oftast kallaður, leikur sem sóknarmaður og hefur spilað með U20 ára landsliði Lesótó og æft með A-landsliðinu.

Síðasta vor seldi Grótta sérhannaðar, gular treyjur til að hefja fjármögnun á þessu spennandi verkefni og er óhætt að segja að treyjurnar hafi slegið í gegn. Fljótlega verður önnur fjáröflun sett á laggirnar en það er talsverður kostnaður sem fylgir ómældri pappírsvinnu, löngu ferðalagi og þannig mætti lengi telja

„Þetta hefur verið langt og flókið ferli en loksins er Tumeliso að koma til Íslands. Hann ef hæfileikaríkur fótboltamaður sem á möguleika á að ná langt, en fyrst og fremst þarf að sýna þolinmóð því menningarmunurinn milli Íslands og Lesótó er mikill. Grótta hefur síðustu árin verið í fararbroddi félaga sem gefa ungum leikmönnum tækifæri, bæði uppöldum og ungu fólki sem hefur komið annars staðar frá, og í sumar hefur meistaraflokkur karla einmitt teflt fram yngsta liðinu í tveimur efstu deildum Íslandsmótsins. Ég veit að Tumi verður tekið með opnum örmum af þjálfarateyminu, leikmannahópnum og samfélaginu á Nesinu," segir Paul Westren um tíðindin.

Tumeliso er kominn með leikheimild og getur, eins og fyrr segir, spilað gegn Þrótti á morgun.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.