Napoli kaupir tvo frá Bari og lánar út (Staðfest)


Mynd: EPA

Caprile varði mark Empoli í 0-1 tapi gegn Verona í fyrstu umferð nýs deildartímabils.

Mynd: Getty Images


Mynd: EPA
Ítalíumeistarar Napoli eru að halda áfram að stækka leikmannahópinn hjá sér fyrir komandi leiktíð í ítalska boltanum og Meistaradeild Evrópu.
Napoli vann sinn fyrsta Ítalíumeistaratitil í rúm 30 ár í vor og verður áhugavert að sjá hvort liðinu takist að verja titilinn í fyrsta sinn í sögunni.
Félagið er með nýjan þjálfara og nýja leikmenn, en núna var Walid Cheddira að bætast við eftir að hafa verið lykilmaður í liði Bari á síðustu leiktíð.
Cheddira er 25 ára miðjumaður frá Marokkó sem lék lykilþátt í góðu tímabili hjá Bari, sem endaði í þriðja sæti Serie B deildarinnar en tapaði í umspili um sæti í efstu deild.
Cheddira er fæddur á Ítalíu en kaus að spila fyrir landslið Marokkó þegar hann fékk kallið í fyrra og fór með landsliðinu á HM. Þar gekk liðinu ótrúlega vel og endaði í fjórða sæti eftir að hafa tapað bronsleiknum naumlega gegn Króatíu.
Napoli ákvað að lána Cheddira beint út og mun hann því leika með nýliðum Frosinone á komandi leiktíð í Serie A.
Markvörðurinn Elia Caprile er einnig farinn frá Bari til Napoli, en Napoli hefur ákveðið að lána hann beint til Empoli.
Caprile, sem er að verða 22 ára gamall, stóð sig frábærlega á milli stanganna hjá Bari á síðustu leiktíð. Hann mun nú fylla í skarðið sem Guglielmo Vicario skilur eftir sig hjá Empoli, en Vicario var einn af bestu markvörðum ítölsku deildarinnar á síðustu leiktíð og er orðinn aðalmarkvörður hjá Tottenham Hotspur í dag.
Napoli er einnig búið að krækja í Natan og Jens Cajuste í sumar, eftir að hafa gengið frá kaupum á Giovanni Simeone og Giacomo Raspadori sem komu báðir á lánssamningum með kaupskyldu í fyrra.

Caprile varði mark Empoli í 0-1 tapi gegn Verona í fyrstu umferð nýs deildartímabils.

Mynd: Getty Images




