Aaron Ramsey til liðs við Burnley (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Aaron Ramsey er genginn til liðs við Burnley frá Aston Villa. Kaupverðið er talið vera í kringum 12 milljónir punda.
Þessi tvítugi miðjumaður er þrettándi leikmaðurinn sem gengur til liðs við nýliða Burnley í úrvalsdeildinni í sumar.
Ramsey leikur sem sóknarsinnaður miðjumaður en félagið festi kaup á miðverðinum Hannes Delcroix frá Anderlecht fyrr í dag.
Burnley fær einmitt Aston Villa í heimsókn um helgina í ensku úrvalsdeildinni en liðin mætast á sunnudaginn.
Aaron Ramsey joins Burnley from Aston Villa — official and confirmed ?????
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 22, 2023
…Burnley special announcement ?????? pic.twitter.com/Si0cWsc7Pq




