Mavropanos til West Ham (Staðfest) - Spenntur að mæta aftur í úrvalsdeildina

Mynd: West Ham

Mynd: West Ham
West Ham hefur gengið frá kaupum á Konstantinos Mavropanos frá Stuttgart. Mavropanos er grískur landsliðsmiðvörður sem var á mála hjá Arsenal á árunum 2018-2022.
Mavropanos skrifar undir fimm ára samning. Kaupverðið er sautján milljónir punda og svo getur Stuttgart fengið tvær milljónir punda til viðbótar í árangurstengdum greiðslum.

Mavropanos er 25 ára og á að baki 19 landsleiki. Hann lék sjö deildarleiki fyrir Arsenal og einn leik í Evópudeildinni.
Hann lék fyrst á láni hjá Nurnberg og svo tvö tímabil með Stuttgart áður en félagið keypti hann fyrir síðasta tímabil.
Núna kaupir svo West Ham frá Stuttgart. „Ég er mjög ánægður og spenntur að vera kominn hingað - og vera kominn aftur í úrvalsdeildina og nú hjá West Ham United," segir Mavropanos sem verður í treyju númer 15.
„Það er spennandi að ganga í raðir félagsins sem vann Sambandsdeildina í vor - og ég er mjög spenntur fyrir næsta skrefi á mínum ferli. Ég get lofað stuðningsmönnum að ég mun gefa þeim allt fyrir þá og fyrir treyjuna."