FRÉTTIR10.08.2023, 16:33
Birkir Bjarnason er formlega orðinn leikmaður ítalska félagsins Brescia á nýjan leik. Brescia féll úr ítölsku B-deildinni á síðasta tímabili.
Birkir, sem er 35 ára, kemur til Brescia frá norska liðinu Viking þar sem hann skoraði tvö mörk í ellefu leikjum.
FRÉTTIR10.08.2023, 16:20
Bournemouth er búið að ganga frá kaupum á hinum efnilega Alex Scott sem kemur frá Bristol City.
FRÉTTIR10.08.2023, 15:09
Markvörðurinn efnilegi Herdís Halla Guðbjartsdóttir hefur fengið félagaskipti yfir í FH, en hún kemur til félagsins á láni frá Breiðabliki.
FRÉTTIR10.08.2023, 15:00
Markvörðurinn Jökull Andrésson mun spila á komandi keppnistímabili með Carlisle í ensku C-deildinni.
Áður en hann gekk í raðir Carlisle þá skrifaði hann undir samning við Reading sem gildir til ársins 2025.
FRÉTTIR10.08.2023, 14:00
Luton Town hefur gengið frá kaupum á skoska framherjanum Jacob Brown frá Stoke City.
Luton er nýliði í ensku úrvalsdeildinni og spilar gegn Brighton á laugardaginn.
Brown er 25 ára og kom til Stoke 2020, hann spilaði 141 leik fyrir félagið og skoraði 30 mörk.
FRÉTTIR10.08.2023, 13:00
Keflavík hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir baráttuna í Bestu deild kvenna því Ameera Abdella Hussen er búin að fá skipti yfir til félagsins.
FRÉTTIR10.08.2023, 11:08
West Ham hefur loksins keypt sinn fyrsta leikmann í sumar; Edson Alvarez er kominn til félagsins frá Ajax.
Kaupverðið fyrir Alvarez er um 35 milljónir punda en leikmaðurinn skrifar undir fimm ára samning við Lundúnafélagið.
FRÉTTIR10.08.2023, 06:00

Fílbeinsstrendingurinn Franck Kessie er genginn til liðs við Al Ahli frá Barcelona. Kaupverðið er rúmlega 12 milljónir evra.

FRÉTTIR09.08.2023, 18:00

Sheffield United hefur nælt í brasilíska miðjumanninn Vinicius Souza frá Lommel. Hann gerir fjögurra ára samning við félagið.

FRÉTTIR09.08.2023, 16:30
Burnley hefur gengið frá kaupum á norska miðjumanninum Sander Berge. Hann kemur til félagsins frá Sheffield United.
Þetta eru ansi athyglisverð kaup í ljósi þess að Burnley og Sheffield United eru nýliðar og munu mögulega berjast við hvort annað í neðri helmingi deildarinnar. Berge átti eitt ár eftir af samningi sínum við Sheffield United og félagið hafði áhyggjur af því að missa hann frá sér á frjálsri sölu.
FRÉTTIR09.08.2023, 14:27
Ross Barkley hefur fengið félagaskipti yfir til nýliða Luton Town í ensku úrvalsdeildinni.
FRÉTTIR09.08.2023, 14:13
Wolves hefur tilkynnt að Gary O'Neil sé nýr stjóri félagsins. Hann tekur við stjórnataumunum af Julen Lopetegui sem steig frá borði í gær.
Lopetegui var ósáttur við að geta ekki styrkt liðið eftir að hafa haldið því uppi á síðasta tímabili.
FRÉTTIR09.08.2023, 10:07
Nottingham Forest hefur staðfest kaup á bandaríska markverðinum Matt Turner frá Arsenal.
FRÉTTIR09.08.2023, 09:23
Skagamaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson hefur verið lánaður frá FC Kaupmannahöfn í Danmörku til Fortuna Dusseldorf í þýsku B-deildinni.
FRÉTTIR09.08.2023, 09:05
Burnley hefur lánað hollenska sóknarmanninn Wout Weghorst til Hoffenheim í Þýskalandi út komandi tímabil.
Weghorst er 31 árs og lék á lánssamningum með Besiktas og Manchester United á síðasta tímabili. Hann lék 31 leik fyrir United eftir að hann kom til félagsins í janúar, skoraði tvö mörk og átti þrjár stoðsendingar.
FRÉTTIR09.08.2023, 07:20

Spænski miðjumaðurinn Andrés Iniesta er genginn til liðs við Emirates Club FC sem eru nýliðar í efstu deild í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

FRÉTTIR09.08.2023, 06:00

Það er mikið umbreytingarsumar hjá þýska félaginu Wolfsburg sem hefur verið að kaupa og selja þónokkuð af leikmönnum í sumar.

FRÉTTIR09.08.2023, 06:00

Hertha Berlin er búið að festa kaup á pólska bakverðinum Michal Karbownik sem kemur úr röðum Brighton fyrir um 2,5 milljónir evra.

FRÉTTIR08.08.2023, 20:55

Torino er búið að krækja í þrjá nýja miðjumenn í sumar eftir staðfestingu á félagsskiptum Nikola Vlasic frá West Ham United.

FRÉTTIR08.08.2023, 20:37

Lopetegui er farinn frá Wolves aðeins nokkrum dögum fyrir upphafsflautið á nýju úrvalsdeildartímabili.