Herdís Halla á láni í FH (Staðfest) - Einn efnilegasti markvörður landsins

Herdís Halla Guðbjartsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Herdís Halla Guðbjartsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markvörðurinn efnilegi Herdís Halla Guðbjartsdóttir hefur fengið félagaskipti yfir í FH, en hún kemur til félagsins á láni frá Breiðabliki.
Herdís Halla, sem er fædd árið 2007, er einn efnilegasti markvörður landsins.
Hún hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað 42 KSÍ-leiki en þeir hafa allir komið með Augnabliki, venslafélagi Breiðabliks. Hún hefur í sumar spilað 13 leiki í Lengjudeildinni og tvo leiki í Mjólkurbikarnum.
Aðalmarkvörður FH er Aldís Guðlaugsdóttir og hefur hún verið einn öflugasti markvörður Bestu deildarinnar. En hún hefur verið að glíma við höfuðmeiðsli eins og hún talaði um í samtali við Fótbolta.net fyrir stuttu.
„Ég er núna búin að fá þrjú eða fjögur frekar stór höfuðhögg. Þetta er orðið smá þreytt, frekar erfitt. Þetta fer smá í andlegu hliðina, ég viðurkenni það," sagði Aldís en hún missti af Evrópumóti U19 landsliða vegna höfuðmeiðsla.
FH spilar gegn Keflavík í Bestu deildinni í kvöld og það er spurning hvort Herdís verði í markinu í þeim leik.