Fotbolti.net
09.08.23 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Hertha kaupir bakvörð frá Brighton (Staðfest)

Hertha kaupir bakvörð frá Brighton (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Hertha Berlin er búið að festa kaup á pólska bakverðinum Michal Karbownik sem kemur úr röðum Brighton fyrir um 2,5 milljónir evra.

Karbownik er 22 ára gamall og kom aðeins við sögu í tveimur leikjum með Brighton. Enska félagið lánaði hann út til Olympiakos fyrir tveimur árum og Fortuna Düsseldorf í fyrra, þar sem hann vakti athygli Berlínarfélagsins með frábærri frammistöðu í þýsku B-deildinni.

Karbownik er réttfættur en leikur sem vinstri bakvörður að upplagi. Hann er einnig öflugur sem hægri bakvörður og sem varnarsinnaður miðjumaður.

Hann á fjóra A-landsleiki að baki fyrir Pólland eftir að hafa verið mikilvægur hlekkur upp yngri landsliðin, með tæpa 40 leiki að baki.

Karbownik mun leika með Hertha í B-deild þýska boltans eftir að félagið féll úr efstu deild í fyrra. Hann endaði í fjórða sæti með Dusseldorf á síðustu leiktíð og býr því yfir góðri reynslu úr deildinni.

Hertha kaupir bakvörð frá Brighton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.