Fotbolti.net
08.08.23 - 20:55
Ívan Guðjón Baldursson

Torino fær Vlasic frá West Ham (Staðfest)

Torino fær Vlasic frá West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Torino er búið að krækja í þrjá nýja miðjumenn í sumar eftir staðfestingu á félagsskiptum Nikola Vlasic frá West Ham United.

Torino borgar um 13 milljónir evra fyrir Vlasic sem er sóknartengiliður að upplagi og getur einnig spilað úti á köntunum.

West Ham keypti hann fyrir tveimur árum og borgaði þá um 35 milljónir evra en hann stóðst ekki væntingarnar sem til hans voru gerðar í enska boltanum.

Vlasic gerði flotta hluti á láni hjá Torino á síðustu leiktíð og vildi ólmur skipta aftur til félagsins í sumar. West Ham hafnaði þó tilboðum frá Torino og vildi meiri pening, sem varð til þess að Vlasic kvartaði opinberlega og fór fram á sölu.

Vlasic er þriðji miðjumaðurinn til að ganga í raðir Torino í sumar eftir að félagið fékk tvo leikmenn úr röðum Verona. Torino borgaði um 15 milljónir evra fyrir Ivan Ilic, sem er uppalinn hjá Manchester City, og greiddi þá aðeins um 3 milljónir fyrir Frakkann Adrian Tameze.

Ivan Juric, þjálfari Torino, stýrði Ilic og Tameze hjá Verona áður en hann tók við Torino fyrir tveimur árum. Ilic gerði þá flotta hluti á láni hjá Torino á seinni hluta síðasta tímabils.

Torino er einnig búið að krækja í rúmenska markvörðinn Mihai Popa frá FC Voluntari, liðinu sem Rúnar Már Sigurjónsson spilar fyrir.

Torino fær Vlasic frá West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Torino

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.