
Kessie til Al Ahli (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Fílbeinsstrendingurinn Franck Kessie er genginn til liðs við Al Ahli frá Barcelona. Kaupverðið er rúmlega 12 milljónir evra.
Þessi 26 ára gamli miðjumaður gekk til liðs við Barcelona frá AC Milan fyrir síðasta tímabil á frjálsri sölu.
Honum tókst ekki að festa sig í sessi í byrjunarliðinu en eina mark hans í deildinni var sigurmark gegn Real Madrid.
Hann er fimmti leikmaðurinn sem sádí-arabíska liðið fær frá Evrópu í sumar eftir Riyad Mahrez, Roberto Firmino, Edouard Mendy og Allan Saint-Maximin.
Official, confirmed. Franck Kessié joins Al Ahli on €12.5m deal ???????????? #AlAhlipic.twitter.com/Dp5xb3g04i
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 9, 2023




