Fotbolti.net
10.08.23 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jökull skrifar undir nýjan samning og fer á láni til Carlisle (Staðfest)

Jökull Andrésson.

Jökull Andrésson.

Canon

Mynd: Reading

Markvörðurinn Jökull Andrésson mun spila á komandi keppnistímabili með Carlisle í ensku C-deildinni.

Áður en hann gekk í raðir Carlisle þá skrifaði hann undir samning við Reading sem gildir til ársins 2025.
Reading og Carlisle leika bæði í ensku C-deildinni. Jökull hefur áður spilað í þessari deild á láni með Exeter og Morecambe.

Jökull, sem er 21 árs gamall, hefur verið á mála hjá Reading síðan árið 2018. „Við erum hrikalega ánægðir að hafa endursamið við Jökul. Hann hefur verið lengi hjá félaginu og er mjög vinsæll á meðal leikmanna og þjálfara," segir Mark Bowen, yfirmaður fótboltamála hjá Reading.

Bowen segir jafnframt að þessi lánssamningur muni hjálpa Jökli að þróa sinn leik en íslenski markvörðurinn vonast til þess að verða aðalmarkvörður Reading á næstunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.