Fotbolti.net
08.08.23 - 20:37
Ívan Guðjón Baldursson

Lopetegui farinn frá Wolves (Staðfest)

Lopetegui farinn frá Wolves (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Lopetegui er farinn frá Wolves aðeins nokkrum dögum fyrir upphafsflautið á nýju úrvalsdeildartímabili.

Spænski stjórinn er ósáttur með stjórnendur félagsins sem leyfa honum ekki að styrkja hópinn þrátt fyrir að hafa selt leikmenn. 

Lopetegui tók við Wolves fyrir áramót og tókst að halda liðinu í ensku úrvalsdeildinni en hann vildi styrkja hópinn fyrir komandi átök.

Wolves er aðeins búið að kaupa einn leikmann í sumar, Matheus Cunha frá Atletico Madrid, en Matt Doherty og Tom King komu frítt.

Sky Sports greinir frá þessu og segir Gary O'Neil, sem var óvænt látinn fara frá Bournemouth í sumar, vera líklegan arftaka.

Lopetegui farinn frá Wolves (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.