Fotbolti.net
09.08.23 - 09:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ísak Bergmann í Fortuna Dusseldorf (Staðfest)

Ísak verður í treyju númer átta hjá Dusseldorf.

Ísak verður í treyju númer átta hjá Dusseldorf.

Canon

Mynd: Fortuna Dusseldorf

Skagamaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson hefur verið lánaður frá FC Kaupmannahöfn í Danmörku til Fortuna Dusseldorf í þýsku B-deildinni.
Lánssamningurinn er út tímabilið núna og svo hefur Dusseldorf möguleika á því að kaupa Ísak eftir tímabilið.

Bild fjallaði um það í gær að Dusseldorf hefði samið við FCK um 2 milljón evra kaupverð en það er rúmlega helmingi lægri upphæð en danska félagið greiddi Norrköping fyrir Ísak haustið 2021.

Ísak er tvítugur miðjumaður, landsliðsmaður, sem hefur ekki verið í stóru hlutverki í upphafi tímabilsins hjá FCK og var ósáttur við takmarkaðan spiltíma sinn á síðasta tímabili.

„Ísak er með mikla landsliðsreynslu miðað við aldur. Á síðasta tímabili spilaði hann í Meistaradeildinni og þá hefur hann leikið 19 A-landsleiki fyrir Ísland. Við erum að fá hér mjög hæfileikaríkan leikmann með sterkan vinstri fót sem gefur okkur mikla möguleika í leikmannahópnum," segir Christian Weber, yfirmaður fótboltamála hjá Dusseldorf.

Ísak er spenntur fyrir þessu nýja tækifæri. „Ég er spenntur að fylgja í fótspor goðsagnar eins og Atla Eðvaldssonar og spila í Dusseldorf með Fortuna. Félagið sýndi mikinn áhuga á mér og mér finnst þetta vera rétta skrefið fyrir mig. Ég get ekki beðið eftir því að byrja," segir leikmaðurinn ungi.

Dusseldorf endaði í fjórða sæti B-deildarinnar í Þýskalandi á síðasta tímabili og stefnir eflaust á það að fara upp á þessu tímabili. Liðið hefur byrjað vel og er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.