Fotbolti.net
10.08.23 - 16:33
Elvar Geir Magnússon

Brescia kynnir Birki Bjarna (Staðfest) - „Víkingurinn kominn aftur"

Birkir Bjarnason.

Birkir Bjarnason.

Canon

Mynd: Getty Images

Birkir Bjarnason er formlega orðinn leikmaður ítalska félagsins Brescia á nýjan leik. Brescia féll úr ítölsku B-deildinni á síðasta tímabili.

Birkir, sem er 35 ára, kemur til Brescia frá norska liðinu Viking þar sem hann skoraði tvö mörk í ellefu leikjum.
Á ferli sínum hefur Birkir leikið mörg tímabil í ítalska boltanum og var hjá Brescia í eitt og hálft tímabil 2020-2021.

Hann hefur spilað 113 leiki og skorað 15 mörk fyrir íslenska landsliðið.

Hann hefur víða komið við á ferli sínum og meðal annars spilað fyrir Aston Villa og Adana Demirspor í Tyrklandi.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.