Weghorst til Hoffenheim (Staðfest)

Wout Weghorst.

Mynd: Getty Images

Wout Weghorst.

Mynd: Getty Images
Burnley hefur lánað hollenska sóknarmanninn Wout Weghorst til Hoffenheim í Þýskalandi út komandi tímabil.
Weghorst er 31 árs og lék á lánssamningum með Besiktas og Manchester United á síðasta tímabili. Hann lék 31 leik fyrir United eftir að hann kom til félagsins í janúar, skoraði tvö mörk og átti þrjár stoðsendingar.

Burnley keypti Weghorst á 12 milljónir punda í janúar 2022.
„Það er risastórt fyrir félagið að fá Weghorst. Hann hafði ýmsa möguleika en valdi Hoffenheim og það sýnir að félagið getur laðað að sér stór nöfn," segir Alexander Rosen, framkvæmdastjóri Hoffenheim.
Weghorst þekkir Bundesliguna en hann skorað 59 mörk í 118 leikjum fyrir Wolfsburg áður en hann gekk í raðir Burnley. Hoffenheim endaði í 12. sæti þýsku Bundesligunnar á síðasta tímabili.