Sheffield United hefur fundið eftirmann Berge (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Sheffield United hefur nælt í brasilíska miðjumanninn Vinicius Souza frá Lommel. Hann gerir fjögurra ára samning við félagið.
Sheffield er nýliði í ensku úrvalsdeildinni en Sander Berge yfirgaf félagið í dag og gekk til liðs við nýliða Burnley en Souza kemur til með að fylla skarðið sem Berge skilur eftir sig.
Kaupverðið er um 10 milljónir punda.
Souza var á láni hjá Espanyol í spænsku deildinni á síðustu leiktíð. Hann lék 34 leiki og skoraði eitt mark.
Sheffield hefur misst annan lykilmann en þeirra helsti markaskorari, Iliman Ndiaye gekk til liðs við Marseille. Souza er fimmti leikmaðurinn sem Sheffield fær í sumar.
Bem-vindo, Vinícius! ????
— Sheffield United (@SheffieldUnited) August 9, 2023
Highly-rated midfielder Vinícius Souza has signed a four-year deal with United paying Belgian side, Lommel SK, a substantial undisclosed fee.#SUFC ????




