Fotbolti.net
10.08.23 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Jacob Brown í Luton (Staðfest)

Jacob Brown kemur frá Stoke sem er í Championship.

Jacob Brown kemur frá Stoke sem er í Championship.

Canon

Mynd: Getty Images

Luton Town hefur gengið frá kaupum á skoska framherjanum Jacob Brown frá Stoke City.

Luton er nýliði í ensku úrvalsdeildinni og spilar gegn Brighton á laugardaginn.

Brown er 25 ára og kom til Stoke 2020, hann spilaði 141 leik fyrir félagið og skoraði 30 mörk.
Hann er annar leikmaðurinn sem Luton kaupir í vikunni en áður hafði félagið fengið Ross Barkley á frjálsri sölu. Alls hafa Rob Edwards og lærisveinar krækt í níu leikmenn í sumar.

„Það er draumur allra krakka að spila í ensku úrvalsdeildinni og ég hef enn ekki afrekað það," segir Brown sem er kraftmikill leikmaður með góðan hraða.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.