Fotbolti.net
10.08.23 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ameera Hussen í Keflavík (Staðfest)

Ameera í leik með ÍBV.

Ameera í leik með ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Keflavík hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir baráttuna í Bestu deild kvenna því Ameera Abdella Hussen er búin að fá skipti yfir til félagsins.
Ameera er 24 ára gömul og spilar oftast sem sóknarsinnaður miðjumaður.

Ameera, sem er frá Bandaríkjunum, þekkir Jonathan Glenn, þjálfari Keflavíkur, vel eftir að hafa spilað hjá honum í ÍBV á síðustu leiktíð. Hún var einn besti leikmaður ÍBV á síðasta tímabili.

Þessi öflugi leikmaður getur leikið sinn fyrsta leik fyrir Keflavík gegn FH í Bestu deildinni í kvöld.

Keflavík er sem stendur í fallsæti, í níunda sæti Bestu deildar kvenna með jafnmörg stig og ÍBV sem er í áttunda sæti deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.