Ross Barkley til Luton (Staðfest)

Ross Barkley.

Mynd: Getty Images

Ross Barkley.

Mynd: Getty Images
Ross Barkley hefur fengið félagaskipti yfir til nýliða Luton Town í ensku úrvalsdeildinni.
Barkley kemur inn með mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni sem er mikilvægt fyrir Luton í ljósi þess að liðið er með ansi fáa leikmenn sem eru með einhverja reynslu úr þessari deild.
Barkley var á sínum tíma einn efnilegasti leikmaður Englands en hann ólst upp hjá Everton.
Hann fór svo til Chelsea árið 2018 en þar gekk ekki mikið upp hjá honum. Hann var lánaður til Aston Villa og gekk svo í raðir Nice í Frakklandi fyrir síðasta tímabil.
Barkley spilaði 27 leiki og skoraði fjögur mörk í frönsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Luton komst upp úr ensku Championship-deildinni í gegnum umspilið á síðasta tímabili en liðinu er spáð beint aftur niður. Það verður fróðlegt að sjá hvort Luton takist að afsanna þær spár.