
Iniesta til Emirates Club FC (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Spænski miðjumaðurinn Andrés Iniesta er genginn til liðs við Emirates Club FC sem eru nýliðar í efstu deild í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Iniesta er 39 ára gamall og gerir eins árs samning við Emirates Club eftir að hafa leikið fyrir Vissel Kobe í fimm ár í japanska boltanum.
Iniesta er goðsögn í fótboltaheiminum eftir að hafa unnið til ógrynni verðlauna með Barcelona auk þess að vinna bæði HM og EM með spænska landsliðinu.
Iniesta er talinn hafa verið með fleiri tilboð á borðinu en valdi Emirates Club vegna loforðs um spiltíma og möguleika á eins árs samningsframlengingu.
Welcome #iniesta in #emiratesclub ???????????? @andresiniesta8 @fabriziorom @liveherewego_ pic.twitter.com/Ak52cyEvNY
— ???? ???? ???????? ???? ????? (@Emirates_FC) August 7, 2023




