Gary O'Neil tekinn við Wolves (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Wolves hefur tilkynnt að Gary O'Neil sé nýr stjóri félagsins. Hann tekur við stjórnataumunum af Julen Lopetegui sem steig frá borði í gær.
Lopetegui var ósáttur við að geta ekki styrkt liðið eftir að hafa haldið því uppi á síðasta tímabili.

O'Neil gerði frábæra hluti hjá Bournemouth á síðasta tímabili, tók við liðinu af Scott Parker sem var látinn fara snemma tímabils og hélt liðinu uppi þvert á flestar spár.
O'Neil skrifar undir þriggja ára samning á Molineux. Hann er fertugur og er yngsti stjórinn til að taka við Úlfunum á þessari öld. Hann var nokkuð óvænt látinn fara frá Bournemouth í júní.
Hann lék á sínum tíma með Portsmouth og West Ham.